Handsmíðað EIK eða Douglas
Grettir – útiborð og bekkir 6 manna – 160 cm
Grettir – útiborð og bekkir 6 manna – 160 cm
Viltu gera garðbekkinn persónulegri? Við bjóðum upp á grafskrift sem eigandi Útihúsgagna handfræsir eftir þinni ósk — til dæmis nafn, húsnafn eða stuttan minningartexta. Merktur bekkur er falleg gjöf fyrir afmæli og önnur tilefni, sumar sem vetur. Skoðaðu einnig aukahlutina sem henta garðbekkjunum. Sjá Viðbætur
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Grettir – útiborð og bekkir með baki úr eik eða Douglasgreni
Grettir er útihúsgögn sem sameina styrk, þægindi og náttúrulega fegurð. Borðið og bekkirnir eru handsmíðuð úr evrópsku Douglasgreni eða ljósri eik – efnisþykku harðviði sem hentar fullkomlega fyrir íslenskt veðurfar. Þykkir plankar, náttúrulegir kantar og sterk hönnun skapa vandað útlit sem fýkur ekki og endist árum saman.
Helstu kostir
- Sterk og falleg útihúsgögn
- Hágæða harðviður úr evrópskum skógum
- Bekkir með baki fyrir aukin þægindi
- Handsmíðað úr þykkum plönkum
- Þung smíði sem fýkur ekki
- Náttúrulegt útlit og náttúrulegir kantar
- Endist árum saman án innigeymslu
- Fullkomið fyrir íslenskar aðstæður
Fæturnir eru í víkingstíl sem gefur settinu kraftmikið yfirbragð og tryggir á sama tíma stöðugleika og styrk. Skandinavísk hönnun sem fellur vel að umhverfi og hentar jafnt í garða, við sumarhús, á útisvæði fyrirtækja og opin svæði sveitarfélaga.
Stærð
- Borð: 160 × 75–80 cm
- Bekkir: 160 cm hvor með baki
- Fjöldi sæta: 6 manna
Hægt er að sérpanta aðrar lengdir - Hafðu samband
Frí heimsending á Suðvesturlandi.
Grettir Ásmundarson, hinn sterki úr fornsögunum, var tákn styrks og þrautseigju – rétt eins og þetta borð og bekkir sem standa af sér veður og vind árum saman.
Viðartegund: Eik eða Douglasgreni
Handsmíðað: Já
Þyngd: u.þ.b. Douglas ca. 150kg - Eik ca 200kg+ kg
Share
