Farðu í vöruupplýsingar
1 af 2

Handsmíðað EIK eða Douglas

Freyr – útistóll úr Douglasgreni

Freyr – útistóll úr Douglasgreni

Venjulegt verð 85.000 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 85.000 ISK
Útsala Sérvara eða uppselt - Hafðu samband
Skattar innifaldir. Sending reiknuð við kassa.
Veldu viðartegund

Vorgámurinn er kominn – mikið úrval á lager

Freyr útistóll er sterkur og endingargóður tréstóll sem hannaður er fyrir íslenskar aðstæður. Stóllinn er smíðaður úr þykkum plönkum sem gefa bæði mikinn styrk og hlýlegt, náttúrulegt yfirbragð og fæst bæði úr Douglasgreni og eik.

Viðurinn gefur stólnum fallegt og náttúrulegt yfirbragð sem fellur vel inn í pallinn, garðinn eða sumarhúsið. Douglasgrenið er fúvarið og kemur með hlýlegum brúnum lit á meðan eikin er ljósari og mjög þéttur harðviður sem fær með tímanum fallega gráa áferð. Hægt er að viðhalda litnum með olíu eða leyfa viðnum að taka á sig náttúrulega áferð.

Freyr stóll passar fullkomlega með Freyr garðbekkjum og fellur einnig vel að borðsettum eins og Gretti og Hallgerði. Sama hönnun og efnisval skapar heilsteypt og vandað útlit í útirýminu.

Þetta er þungur og stöðugur útistóll sem fýkur ekki og er hannaður til að standa úti allt árið með lágmarks viðhaldi.

Helstu kostir

  • Útistóll úr Douglasgreni eða eik
  • Fúvarið Douglasgreni eða ljós eik
  • Þykkir plankar og sterk smíði
  • Þungur og stöðugur – fýkur ekki
  • Passar með Freyr garðbekk og borðsettum
  • Hentar fyrir pall, garð og sumarhús

Freyr útistóll er hluti af Freyr línunni þar sem einfaldleiki, styrkur og norræn hönnun fara saman í húsgögnum sem endast árum saman.

Viðartegund: Eik eða Douglasgreni

Handsmíðað:

Þyngd: u.þ.b. 35 kg

Skoða allar upplýsingar